Sælir félagar og gleðilega hátíð.
Þó svo að jólin séu hátíðartími þá er ekki hægt að gleyma að okkar vinur Jóhann Valdimar Kjartansson lést fyrir skömmu.
Með sorg í hjarta og góðum minningum kvöddum við hann í mjög svo fallegri útför, sem var haldin í Árskógskirkju.
Við eigum allir margar góðar minningar með Jóa og vona að þær verði lengi í minnum manna hafðar.
Jói þótti alltaf sterkur strákur og sýndi hann það allt til síðustu stundar. Hann þótti ávallt glaðbeittur og jákvæður þó svo erfiðir tímar hafi verið í vændum.
Með miklu stolti getum við þá búið, þar sem var búin var til sérstakur sjóður handa honum og lögðu hugprúðugt fólk margt á sig til þess eins að safna áheitum til þess eins að létta honum og hans fjölskyldu aðeins lífið.
það var okkur sannur heiður að fá að þekkja þig, þó að tíminn hafi verið alltof stuttur .
F.h 165 prómill: Gunnar Njáll Gunnarsson